fitupúkinn

velkomin í heimsókn

22.08.2006 07:31:58 / viljin

Jahérna ...................................

Það er kannski kominn tíma á að láta aðeins frá sér heyra.Eins og sést hefur hef ég ekki skrifað svo mikið sem staf hér inn síðan einhvern tímann í mai,og eru ástæður þess býsna margar,:):)

við skelltum okkur í danaveldi í 2 frábærar vikur,nú svo er búið að vera brjálað að gera í málningarvinnu á húsinu okkar + það að byggja 1 stykki bílskúr og geymslu þannig að það er ekki hægt að seigja að við höfum bara setið og klórað okkur í afturendanum.;););)

Við höfum ekkert verið að DDV í sumar en sem betur fer hefur ekki bæst á okkur eitt einasta gramm þannig að með haustinu er hugmyndinn að fara aftur af stað í breyttum lífsstíl og er undirbúningsvinnan hafinn að því.8|8|

Hér í norge er búið að vera klikkað gott sumar og ALDREI hefði ég trúað því að ég ætti eftir að kvarta undan hita það get ég svarið,enda hef ég aldrei farið svona oft á ströndina eins og þetta sumarið,sylvían mín er gjörsamlega orðinn kaffibrún enda má barnið ekki svo mikið sem kíkja útum glugga þegar sólin skín þá verður hún svört.

Villinn minn litli er búin að prufa tvenns konar lyf við sínum veikindum og var annað þeirra ekki að virka svo það var svissað yfir í annað og nú erum við á reynslu með það og en sem komið er hafa engar breytingar gerst hjá elskuni þannig að væntanlega verður 3ja lyfið reynt eftir einhverjar vikur.:$:$:$

Nú svo er Árninn minn kominn heim eftir rúmlega 8vikna dvöl á íslandinu hjá pabba sínum og mikið skelfing var gott að fá hann heim ég held að ég hafi bara aldrei saknað hans eins og nú og hefur hann nú samt oft verið svona lengi í burtu frá okkur.:P:P

Þannig að í hnotskurn gengur lífið sinn vanagang á þessum bæ,skólinn byrjar 28ág og er ég mikið glöð með það því að villi minn hefur ekki verið mikið á því að fara eitthvað í sumar með okkur nema í þessi skipti sem við höfum farið á ströndina og er þetta víst ein kvöð af þessum sjúkdóm hjá honum.:cry::cry::cry:

Annars er það að frétta af elskonum mínum á íslandi þeim Þórönnu,Madda og litlu fallegu ömmuástini henni Birtu Mjöll að þar gengur allt vel elskan hún dóttir mín Þóranna er byrjuð að vinna eftir fæðingarorlofið og tengdasonur minn er búinn að vera á sjó í allt sumar og er svo að byrja aftur í háskólanum,:haha:

þetta eru alveg einstakir krakkar bæði 2 og er ég alveg ótrúlega stolt af þeim.Litla fallega Birtan hennar ömmu sinnar er svo dugleg að ég er vissum það að næst þegar ég sé hana verður mín farinn að labba sem verður í nóvember  þegar þær kíkja til ömmu og afa,og ef hún líkist mömmu sinni eitthvað þá er ekki langt að bíða í að mín fari af stað á 2 jafnfljótum,:haha::haha:

en nú seigjum við þetta gott að sinni

ætlað reyna vera duglegri að blögga

kveðja

Helga í hitanum.8)8)8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 07:10:44 / viljin

PÚFFFFFFFFF

Þetta er bara ekki einleikið hvað það er lítið að frétta,er ennþá að klóra í bakkan og reyna að koma mér uppúr þessari lægð en ætli það hafist nokkuð fyrren maður er komin í sumarfríið í danaveldi eftir 2 vikur jey,það verður æðislegt að hitta slatta af fólkinu sínu þar og svo ég tali nú ekki um að geta skilið allar áhyggjur eftir heima í norge eða reynt það alla vegana.8|8|8|

 

Ég hef ekkert stigið á vikt núna í held ég 2 vikur,en get samt glatt sjálfa mig á því að ég er farin að nota föt sem ég hef varla komist í í 2 ár og þau eru meira að seigja sum hver í víðari kantinum og sum sem smellpassa þannig að eitthvað hlýt ég að vera að gera rétt þrátt fyrir að halda mér ekki 100% við DDV,en ég er alveg ÁKVEÐINN  í því að taka mig taki þegar ég kem frá danaveldi og halda mér við hann í góðan tíma,því að ég ÆTLA mér að standa við mín markmið og þó að hægt gangi þá skal það ganga;);););)

 

Annars er það að frétta að elskan mín litla er bara við það sama ekki komin á ný lyf ennþá og veit ekki hvort það hefst áður en farið verður til danm ég vona það bara svo innilega,ég læt mig dreyma um það að þau muni virka svo vel að elskan nái að komast útúr sjálfum sér og verði þar af leiðandi virkari úti í þjóðfélaginu æji það yrði svo yndislegt að sjá þessa elsku úti að leika sér án vaktar eða að hann gæti farið í afmælisveislur aleinn og komið heim sæll og glaður guð hvað það væri æðislegt og ég vona bara að þessi draumir minn verði að veruleika sem fyrst8|8|8|

.

Kveð ykkur að sinni ætla að reyna vera duglegri að blogga8|8|

 

BARÁTTU KVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA.:haha::haha:

 

OVER AND OUT

 

HELGA OG VILLI 8)8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 06:35:25 / viljin

Vá veðrið er geggjað og verður svoleiðis áfram.

Annars er lítið að frétta á þessum bæ,það liggur ennþá þessi lægð yfir mér og er ég að berjast í því að komast uppúr þessu.8)8)

Mér líður eins og 1000tonna trukkur hafi keyrt yfir mig svo þreytt er ég, eða það er kannski ekki rétta orðið frekar svo mikil depurð sem veldur þessari þreytu er eitthvað vit í þessu hjá mér.8|8|8|

Ég er alls ekki neikvæð eða neitt svoleiðis heldur bara þessi óútskýranlega líðan,mér gengur td. Ágætlega að borða hollt og passa hvað ég set ofan í mig og meira að seigja borða 3svar á dag og er það nú bara met á mínum bæ:P:P að vísu er ég alveg dottin út úr því að borða 600-1000gr af grænmeti á dag:whut::whut: en ég borða samt alltaf eitthvað grænt á hverjum degi:haha: og eins er það með ávextina ég er ekki nógu dugleg í þeim heldur, en sem betur fer er veðrið svo gott að þá frekar dælir maður í sig ávöxtum alla vega geri ég það sérstaklega köldum og jafnvel búið til eitthvað gott úr þeim.:P:P:P

 

Kveð ykkur að sinni

BARÁTTUKVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA

HELGA.8|;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 07:41:30 / viljin

ÚÚÚFFFFFF EKKERT GENGUR

Eftir að ég fékk sjúkdómsgreininguna á son minn er ég búin að vera í algjörri lægð á öllum sviðum lífs míns,ég berst eins og fjandinn sjálfur sé á eftir mér en hvorki gengur né rekur.:cry::cry::cry:

Ég tók þetta miklu nærri mér en ég bjóst við að ég myndi gera og hef ekki gert neitt annað en að hanga heima hjá mér og glápa á tv og halda heimilinu í horfinu ég er eitthvað óskaplega þreytt og lúinn sem hefur orðið til þess að ég stend mig bara engan vegin í DDV og sagði viktor mér það líka því að ég stóð í stað að vísu þurfti ég að fá lánaða vikt því að viktor minn fór í verkfall,en ég held nú samt að þetta geti alveg staðist því að ég er ekki að gera góða hluti.:cry::cry::cry:

Hún Holtasóley kom með býsna góðan punkt í commentum þegar hún sagði að þetta væri sorgarferli sem maður gengur í gegnum þegar maður fær svona fréttir,en mér hafði bara aldrei dottið í hug að líkja þessu saman við sorg en að sjálfsögðu er þetta alveg hárrétt,maður er ekki að gera neitt annað en að takast á við sorgina yfir því að þessi elska mín á kannski aldrei eftir að fúnkera í lífinu eins og almennt gerist.:cry::cry::cry::cry:

Svo ég er búin að taka þá ákvörðun að leyfa mér að syrgja og sætta mig við það sem koma skal en á meðan ætla ég að taka því rólega á DDV því ég finn það að ég er bara engan vegin í standi til þess að takast á við meira en ég er að gera þessa stundina svo einfalt er það nú.:(:(

Ég ætla nú samt sem áður að passa það sem ég læt ofan í mig og halda mér innan skynsamlegra marka í matarmálum, því ég finn það að þetta gerir mér ekkert nema gott enda þó ég sé í lægð þá er ég samt að halda mér við DDV að stórum hluta en því miður ekki 100% en það kemur.:^):^):^)

 

Gangi ykkur öllum sem best

Barátturkveðjur

          Helga.:cry::cry::cry::cry:

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 12:01:08 / viljin

ÁÁÁÁTTTTTAAAAAKKKKK.

Nú er eins gott að fara sparka vel í afturendan á sjálfum sér og er ég einmitt búin að vera liggja yfir bloggum hjá ykkur elskurnar til þess að nálgast smá pepp,það er alveg dásamlegt að sjá hvað mörgum ykkar er að ganga vel,að það er bara alveg með hreinum ólíkindum en þegar maður sér svona glæsilegan árangur þá lifnar maður sjálfur allur við og það get ég sagt ykkur að það er komið fótspor á afturendan á mér svo rosalega hafa spörkinn verið í morgun hjá sjálfri mér.

Ég er ákveðinn í því að hafa þennan dag 100% DDV með grænmeti og öllu því að ég veit hversu vel mér líður eftirá og það sem búið er af þessum degi hefur gengið samkvæmt áætlun.

Það hefur alveg sýnt sig að ef mér líður ílla þá er ég löt að blogga eða kannski er það skömminn yfir því að vera ekki að standa sig 100%.

Málið er það ég er ekki að sukka í einu eða neinu hvorki nammi eða öðru heldur er vandamálið búið að vera hjá mér að klára ekki grænmetisskammtin minn og viktor hefur sýnt mér það að ég verð að borða grænmetið til þess að standa mig.

Málið er ekki heldur það að mér finnist grænmetið vont,alls ekki ég held bara satt að seigja að ég hafi þurft að prófa eigin leið, æji maður getur verið svo vitlaus stundum alltaf að tjékka hvort þessi leið sé ekki betri en hin,en ég sé það bara núna að það þýðir ekkert helv&/&=$#% hálfkák það er bara að duga eða drepast og þrátt fyrir að ég sé ekki búin að vera þyngjast nema þegar rósa frænka var í heimsókn þá veit ég að ég get gert miklu betur og það ætla ég mér að gera og hana nú.

Annars að öðru, ég á dásamlegan 8ára  son sem barist hefur við alskonar hegðunar vandamál ásamt ýmsu öðru frá því að hann var ungabarn og við foreldranir barist við kerfið bæði á ísl og hér í norge þessa elska fékk greininguna ADHD fyrir ca 5 árum síðan en það vissu það allir að þessi elska átti við mun stærra vandamál að stríða þó að ADHD sé alveg nóg,en það bara vissi enginn hvað ætti að ath næst og aldrei fannst neitt að honum.

Jæja til að gera langa sögu stutta þá fengum við frábæran geðlækni þegar vð fluttum hingað út fyrir rétt tæpum 3 árum síðan og eftir mörg mörg viðtöl og alls kyns rannsóknir á elskuni litlu þá loksins kom viðbótargreining á síðastliðinn föstudag sem seigjir og það að í tillegg við ADHD þá er hann með sjúkdóm sem heitir BIPOLAR SPECTRUM DISORDER sem að eftir því sem ég kemst næst myndi útleggjast sem GEÐHVARFSÝKI OG EINHVERFA Í TILEGG við ætlum að vísu líka að fá álit hjá öðrum lækni bara til þess að vera viss því að það verð ég að seigja að þrátt fyrir að hafa vitað það í langan langan tíma að elskan mín litla væri veikur þá var það smá kjaftshögg að fá staðfestingu á því.

Þið fyrirgefið pústið, þetta hvílir bara svo þungt á mér sérstaklega sökum þess að samkvæmt lækninum á honum bara eftir að versna þegar árin líða og það er þau sem mér kvíðir svo ofsalega fyrir, því að þessi elska er hvers manns hugljúfi og yndislegur í alla staði svo framarlega sem hann verður ekki fyrir áreiti af neinu tægi hann vill bara vera inní sínum eigin hugaheimi og inná sínu heimili þar sem hann finnur sig öruggastan og það er svo erfitt að pína þessa elsku til þess að fara eitthvað með sér í raunini sama hvert er það verður allt svo erfitt fyrir hann hér þarf alltaf mjög langan fyrirvara að öllu því sem á að gera utan veggja heimilins því það versta sem við gerum er að fara eitthvað óundirbúin með hann og kostar það yfirleitt mikil átök hér þar allt að vera í röð og reglu annars er fjandinn laus hvað hann varðar.

En og aftur fyrirgefið ritgerðina,varð bara að blása.

Kveð í bili

Helga og Villi

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 09:14:08 / viljin

Ekki svo gott..........

Ég er ekki alveg nógu sátt við sjálfa mig í dag því hann viktor vinur minn var ekki ánægður með mína það sóru ekki nema 300gr í þessari viku og ég get engum kennt um nema sjálfri mér,því ég er alls ekki búin að vera nógu dugleg með grænmetið mitt þessa daga því miður það bara virðist vera sem svo að ef maður dettur einu sinni af baki að þá er ANDSK erfiðara að koma sér aftur upp:(:(:(

. Það eru líka komnar alskonar raddir sem seigja mér það að þetta sé orðið svo dýrt að ég hafi ekki efni á þessu,BULL SHIT ég skal bara eiga fyrir þessu og ekkert múður,ég get að vísu alveg viðurkennt það að ef manni langar að hafa mikla fjölbreytni þá vill það koma við veskið en SO BE IT er það ekki alveg þessi virði,....:P:P:P:P

fyrir mig er það alveg þess virði.:haha::haha:............. Annars er ég alveg ákveðin í þvi að geta þetta,ég er orðin dauðþreytt á því að burðast með ca 7-8 ára gamalt barn vafða um allan skrokkin á mér því að þyngdin sem ég þarf að missa er u.þ.b. sú sama og dóttir mín er í dag,,,,,8|8|8|

 svo það má eiginlega seigja að fyrir hvert kílo sem hún þyngdist ákvað mamma hennar að vera með henni því og þegar ég horfi til baka þá einmitt byrja ég að bæta vel á mig eftir að hún fæddist þessi elska;););).........

 Villi minn þessi elska er ekki heldur að gera alveg nógu góða hluti,en það sem truflar hann mest er að vera sífellt að narta í afganga á kvöldinn,en hann ætlar að taka sig á með mér aftur.8|8|

 Látum þetta gott heita í bili:$:$

 BARÁTTUKVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA.....:haha::haha:

 KV HELGA OG VILLI 8)8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 17:35:36 / viljin

VIKTOR KOMIN OG VIKTOR TÓK MEÐ SÉR 1,2 KG

JEY og er ég ekkert smá ánægð með það villi elskan mín stóð í stað en það er kannski vegna þess að hann lifir sig svo inní allt saman hjá mér þessi elska HEHE.:haha::haha::haha::haha:

 

Annars verð ég að seigja frá því að það var heilimikið JUKS um helgina bæði vegna þess að það voru páskar og svo komu hérna gestir eins og ég sagði frá í gær,þanig að þegar allt er á litið er ég MJÖG ÁNÆGÐ......8|8|8|

 

Nú á ég bara eftir 800 gr í 5 kíloa múrin og hann ætla ég að brjóta niður í þessari viku og þá kem ég til með að sjá tölu sem ég hef ekki séð í,,, ja hvað á ég að seigja 3-4 ár, og þá á ég ekki eftir nema 3 kg í 8 kílóinn mín sem ég ætla að vera búin að missa 30 mai jeyjeyjey.:D:D:D:D:D:D

 

Pistli lokið að sinni :$:$

 

BARÁTTTUKVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA ;););)

 

HELGA OG VILLI8)8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 07:36:17 / viljin

GLEÐILEGA PÁSKA

Jesús maður hefur ekki gefið sér tíma til þess að skrifa hérna í heila viku.Elskurnar mínar komu hér til okkar á mánudagskvöldið og er maður búin að vera dúllast með þeim mest allan tíman,nú svo fengum við vinahjón okkur hér í heimsókn í 3 nætur og var það mjög gaman.:D:D:D

 

En svo ég seigji nú frá DDV þá bara hefur það alls ekki gengið nógu vel í síðustu vigtun hafði ég þyngst um 900gr og var mín ekki sátt við það að vísu gæti þetta mánaðrlega eitthvað haft að seigja en stendur það en yfir.Annars hafði ég staðið mig mjög vel framá fimmtudagskvöld en svo þegar maður eldaði góðan mat þá SPRAKK blaðran hjá okkur, aðalvandamálið hjá mér er að halda mig við allt grænmetið og er þetta sama vandamál og ég hef alltaf átt við að stríða og það er að gleyma að borða nógu oft.:evil::evil::evil:

 

En frá og með þriðjudeginum 18 apríl verður aftur farið á fullt,ég reyndar þekki sjálfa mig það vel að ég svona nokkurn vegin vissi að páskarnir færu fyrir ofan garð og neðan og var búin að vera velta því fyrir mér að byrja ekki á DDV  fyrir páska, en við því er ekkert að gera nú er bara að standa teinrétt upp og halda áfram og það ætla ég mér að gera.:P:P

 

Ég er búin að sjá það á þessum stutta tíma mínum sem ég hef verið á DDV  að það svínvirkar og það SKAL halda áfram að virka fyrir mig því að ég gefst ekki upp.;););)

 

Mikið ofsalega þætti mér vænt um að fá frá ykkur COMMENT sem hingað kíkið í heimsókn það hefur svo ótrúlega mikið að seigja:haha::haha::haha:.

 

Kveð að sinni

Baráttukveðjur til ykkar allra

Helga og Villi8)8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 09:41:56 / viljin

Hæ hó jibbi jey og jibbi jey það er komin 10 apríl

Og ELSKURNAR MÍNAR KOMA Í KVÖLD og hér eru allir að farast úr spenning að fá þær til okkar því að þetta er í fyrsta skipti sem börnin okkar fá að sjá hana BIRTU MJÖLL yndislega barnabarnið okkar.:P:P:P:P:P

 

Annars var ég að tala við Villa jr  í gær um hana Birtu og spurði hvort hann myndi nú ekki byrja að elska hana þegar hann sæji hann og þá svaraði minn......veistu mamma að ég heyri svo rosalega ílla núna, hehe,en svo þegar ég spurði hvort hann elskaði þórönnu systir sína sem er mamma Birtu þá var minn fljótur til svars og sagði júhú auðvitað og þá var heyrnin komi í gott lag, hann er nefnilega ekki alveg sáttur við það að þurfa deila stóru systir sinni með einhverjum öðrum þessi elska.;);)

 

En að öðru sunnudagurinn gekk mikið betur en laugardagur og stóð ég mig vel í matnum er að vísu pínu lystarlaus ennþá,ég bjó til pasta í anda DDV en með mínu lagi og það var gjeggað hreint og beint.:lol::lol:

 

Við hjónin skelltum okkur í þann lengsta göngutúr sem ég hef farið í mörg ár gengum rösklega í 1 klst og það á móti vindi nánast allan tíman vá og það get ég sagt ykkur að þetta var erfitt en vel þess virði og ég var svo gjörsamlega búin á því að það var ekki fyndið,en villi elskan er búin að vera ofsalega duglegur að labba miklu duglegri en ég,en ég ætla nú samt ekkert að rífa mig niður fyrir það,er bara MJÖG ánægð með minn árangur:haha::haha::haha:

.

Nú svo er vigtun á morgun og það er alltaf spennandi að vakna upp á þriðjudagsmorgunum.

Ég ætla samt ekki að láta mér bregða þó að VIKTOR vinur minn verði eitthvað neikvæður því að nú er að koma að þessu mánaðarlega hjá mér og þá á ég það til að þyngjast um 1-2 kg svo ég tek það bara með í reikning ef svo verður.;););)

 

BARÁTTUKVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA

Og megið þið eiga YNDISLEGAN dag :haha::haha:

Það ætlum við að gera

Og verið jákvæð:haha:

Elskurnar öll sem eitt.

 

Kv Helga og Villi 8)8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 06:58:03 / viljin

DUTTUM Í ÞAÐ Í GÆR ÁTS

 

Misstum okkur í át í gær og vorum alls ekki að standa okkur nógu vel.Málið var það að við vorum alls ekki nógu dugleg að borða grænmetið og ég náði ekki að klára skammtinn minn sem varð þess valdandi að það fór allt í klessu.:cry::cry::cry::cry:

 

Fyrri hluti dags gekk vel borðaði korn flakes í morgunmat en sleppti brauðinu og ávaxtasafanum til að eiga í hádeginu, fékk mér millibita 1 epli,en svo þegar kom að hádegismatnum þá fór að halla undan fæti,hér var á boðstólnum grænmetissúpa og er það bara gott mál þetta var að vísu svona bolla súpa en samkvæmt innihaldslýsingu er hún í lagi,jæja mín ákvað að borða brauðið sitt með og á það fengum við okkur magra skinku, ½ ostaskammtinn og svo smá kotasælu og svo tómat tek það að vísu fram að fyrir sukkið var borðað 1 gulrót og 1 tómatur líka,:D:D:D

 

jæja en brauðið var svo gott að ég fékk mér aðra til með því sama á og þetta varð þess valdandi að ég varð svo södd að ég var alls ekki að standa mig það sem eftir lifði dags fékk íllt í magan og hafði ekki lyst á neinu allan seinni partinn sem gerði það svo að verkum að þegar kom að því að elda kalkúnabringurnar og svínið (var svona sitt lítið af hverju ) þá ákváðum við að prófa að hafa þetta í raspi sem við og gerðum, steiktum þetta í ofni með mjög litlu smjörlíki og höfðum með þessu grænar baunir og rauðkál og sykurlausa jarðaberjasultu og mikið andsk var þetta gott,en engu að síður ábyggilega jafnóhollt og það var gott græðginn var svo mikil að ég meira að seigja gleymdi að vigta dótið og ´fekk mér 2svar á diskinn æææææææ.:cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry:

 

En ég get líka viðurkennt það að samviskubitið var að drepa mig eftir á og þegar búið var að ganga frá var skellt sér í göngutúr til þess að jafna aðeins um slæma samvisku,en ég er farin að sjá það að helgarnar eru verstar hjá okkur því að vð erum svo vön því að hafa góðan mat á helgum eins og flestir og þá er líka sukkað meira og ég finn það að ég verð að hætta að aðskilja helgarnar frá öðrum dögum.8|8|8|

 

Enda ætti það ekki að vera mikið vandamál þar sem að mér finnst allt sem ég hef smakkað frá DDV vera veislumatur,en þetta sýnir manni bara hvað maður getur verið að fljótur að plata sjálfan sig:lol::lol::lol:.

 

En það er sko ALVEG Á HREINU mín gefst sko ekki upp fyrir sukki og svínaríi,ÉG ER KOMIN TIL AÐ VERA.:haha::haha::haha:

 

Ég er annars mjög ánægð með okkur hjónakorn þvi að við erum alveg lýgilega samstíga í þessu átaki okkar og þar sem ég les allt sem ég kemst yfir í sambv DDV þá spyr hann mig alltaf þessi elska,er í lagi að ég borði svona eða svona eða hvað mikið af þessu eða hinu,hann er alveg frábær þessi elska:P:P:P.

 

Annars er það eitt sem ég er að spá í og það er að mér finnst gulrætur og tómatar bestir þegar ég hef ekki náð að klára skammtinn minn að þá finnst mér best að grípa í þetta hvoru tveggja til að fylla uppí er það ekki í lagi8|8|.

 

Eins með ávextina þá finnst mér gul epli og pera best,en hef verið að velta því fyrir mér hvort ég megi halda mér að mestu leyti við þetta tvennt eða hvort ég þurfi að hafa meira fjolbreytni,ég er nefnilega ekkert sérstaklega hrifin að appelsínum td en ég borða samt sem aður alla ávexti og eins með grænmetið ég borða það allt og er ekkert hrædd við að smakka eitthvað nýtt ef svo ber undir og við eigum alltaf mjög mikið úrval af öllu hvort sem er grænmeti eða ávextir.:$:$:$

 

Jæja látum þetta gott heita að sinni

 

BARÁTTUKVEÐJUR

 

SYNDASELRINIR :cry::cry:

 

HELGA OG VILLI8)8)       

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 06:19:56 / viljin

Nammi nammi

 

Við fengum okkur Lapskássu í gær og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það einn að þjóðarréttum norðmanna og samanstendur af gulrótum,kartöflum og rófum ég kynnti mér innihaldið vel og vandlega áður en við borðuðum og get ekki betur séð en að það sé í lagi að fá sér Lapskássu af og til það er líka kjöt í þessu en það er kannski ekki nema 15-20% af öllu saman þannig að þetta hlýtur að vera í lagi,nú ef ekki þá fæ ég bara skömm frá Viktor á þriðjudag og veit þá betur næst.8|8|8|

 

Nú bíður maður bara eftir því að elskurnar mínar mæti á svæðið eftir 2 daga og svo á fimmtudag eigum við von á fleiri gestum en það eru vinahjón okkar frá sandefjord hér í norge og það verður alveg æðislegt að fá þau líka enda alveg yndislegt fólk í alla staði.:P:P:P:P

 

Maður er svona nett byrjaður að setja saman matseðilinn fyrir páska,spá og spokúlera hvað við eigum að bjóða uppá en það hlýtur að rætast eitthvað gott úr því ég alla vegana er með lærið á hreinu og hugsanlega kalkúnin svo verður maður bara að sjá til.:$:$:$

 

Ég er meira að seigja að spá í að baka eitthvað gúmmelaði um páskana úr DDV og sjá hvernig fólk líst á því að ég er búin að finna klassa matvöruverslun sem er að selja allt mögulegt fyrir fólk í nýjum og betri lífstíl það er að vísu ekki merkt DDV né neinu öðru en þetta eru samt allt mjög hollar vörur og þar ætlar mín að versla ég meira að seigja fann búðingsduftið sem ég er búin að vera leita að þannig að nú er hægt að slá upp veislu hvænar sem er og það allt í anda DDV frábært ekki satt.;););)

 

Við erum aðeins svona farin að figta okkur áfram í okkar eigin útfærslum á grænmetinu og jammi hvað það getur bragðast vel,eins og td steiktum við gulrætur,papriku,lauk uppúr mörðum hvítlauk í fyrrakvold og vá hvað það var gott og ég varð svo södd af því að ég náði ekki að klára kjötskammtinn minn því ég læt grænmetið vera í forgangi.:haha::haha:

 

Pistli lokið í dag;););)

 

Baráttukveðjur

Helga og Villi 8)8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 06:52:21 / viljin

BEST AÐ SKVETTA INN ORÐUM

Annars er óskop lítið að frétta8| jú annars ég fann hér  NETBUTIKK sem selur DDV vörur:haha::haha: en viti menn þegar mín ætlaði að setja í körfur þá var búðin tóm takk fyrir,:^):^)þetta er með hreinum ólikindum BÚÐIN VAR TÓM:$:$:$ ég var svo gapandi að ég átti ekki til orð og er ennþá að jafna mig,en jæja það þýðir ekki að væla það hún fyllist ekkert frekar við það.;);););)

 

Kveð að sinni

Helga

styðsta færsla til þessa hehehehehehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 06:49:02 / viljin

VIKTOR KOMIN OG FARINN

 

Og var hann bara nokkuð jákvæður við okkur hjónin:

Ég missti 1,1 kg og villi missti 1,0kg og eru þar af leiðandi farin í heildina 3,9 kg hjá mér og 2,5 hjá villa en til samans gera þetta 6,4 kg á 2 vikum og erum við bara mjög sátt við nýjustu tölur.:haha::haha:

 

Ég skal nú samt viðurkenna það að þetta er sama tala og VIKTOR sýndi mér á sunnudag þannig að það var engin hreyfing hjá mér á 2 dögum og varð ég fyrst í stað fúl :evil:en fór þá að spá í að 1,1 kg á viku er bara mjög gott,en er það ekki alltaf þannig að maður vill alltaf meira og meira, græðginn að drepa mann.Ég var búin að taka þá ákvörðun að vera ánægð með ½ til 1 kg á viku og ég ætla að vera það og meðan viktin fer EKKI  uppá við aftur er ég sátt.:P:P

 

Villi er alveg í skyonum því hjá honum fóru 500gr síðan á sunnudag en það er líka bara mjög gott mál,þetta er bara svo missjafnt á milli manna og samanburður gefur ekkert gott af sér..;);););)

 

En ég veit það líka alveg 100% að ef þessi elska væri ekki að taka þátt í þessu með mér þá væri ég ekkert á neinu sem heitir DDV svo einfalt er það nú:P:P:P

 

Ég verð nú líka að minnast á litla strákinn minn hann villa jr þessi elska er líka búin að missa 600gr síðan að við byrjuðum og er samt það eina sem við höfum gert fyrir hann er að taka af honum kexið,hann fær að vísu kex á laugardögum í staðinn fyrir nammi og að sjálfsögðu stendur honum sem og hinum 2 það sama til boða og okkur en við erum hins vegar ekki að pína þau til þess að borða það sem við borðum en höfum samt eitthvað hollt og gott fyrir þau líka þó þau séu ekki að borða grænmetið í jafnmiklu magni  eins og við.:lol::lol::lol:

 

Nú svo má ekki gleyma að nefna það að GÖNGUTÚR nr 3 var farin í gærkvöldi og í þessu 3 skipti sem við höfum farið höfum við alltaf valið nýjar gönguleiðir og alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt.:haha::haha:

 

Nú styttist óðum í það að elskurnar mínar 2 frá íslandi komi og er það bara eftir 6 daga og það verður svo yndislegt að knúsa þessar elskur báðar 2 og helst vill ég aldrei sleppa þeim aftur;););)

 

Látum þennan pistil duga í bili

Megið þið öll eiga sem bestan dag

Það ætlum við að gera:P:P:P

 

Baráttukveðjur

Helga og Villi 8)8)

 

Ps.

Ég reyndi að setja inn nýjar myndir í gær en er ekki vissum að það hafi tekist,ég sé alla vega engar myndir en ef svo er þá reyni ég að laga þetta við 1 tækifæri8|8|8|

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 07:43:15 / viljin

Jarí jarí

Þetta verður nú stutt í dag,nú verðum við að hafa okkur öll við að gleyma ekki að taka með okkur nesti þegar við förum að snúast á eftir,því það er sko brjálað að gera á þessum bæ í dag.8|8|8|

 

Við erum að fara á fund kl 12 útaf villa jr og þar verða, læknirinn hans frá bub sem er það sama og bugl á isl,sérfræðingar frá ppt sem erfitt er að útskýra hvað er enn þeir sjá sem sagt um að haldið sé vörð um hann hvað varðar skóla og allar hans sérþarfir og svo skólinn,svo þetta verður langur fundur svo það er eins gott að mæta saddur á svæðið.;);)

 

Annars prófuðum við að baka 2 jammi kökur í gær í anda DDV að sjálfsögðu og báðar voru þær mjög góðar slurp,gerði að vísu stórar uppskriftir svo allir gætu smakkað og önnur þeirra lagðist vel í krakkana en hin fannst þeim ekki spes,en okkur hjónum fannst þær ÆÐI.:haha::haha:

 

Hér vöru bakaðar kalkúnabringur í kvöldmatinn og þær voru hreint og beint meirháttar,ég hef alltaf steikt þær eða grillað en ákvað að prófa baka þær og það er bara best.:haha::haha:

 

Látum þetta gott heita að sinni :P:P

 

Baráttukveðjur

 

Helga og Villi 8)8)8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 09:47:24 / viljin

1 meðvitaða svindlið

En það var nú svosem ekki neitt voða hættulegt held ég, alla vegana bjó ég til baernies sósu (kannski vitlaust skrifað) með grillmatnum í gærkv en mér til pínulíttilar ánægju var hún svo þunn og bara frekar vont þannig að það var ekki fengin sér ábót á diskinn hehehe gott á mig.;););)

 

Ég er nefnilega annáluð sósukjelling og alltaf þurft að hafa allt fljótandi á disknum hjá mér ojojojojojojoj en það er nú liðin tíð.:D:D

 

Humm humm ég reyndar svindlaði líka í morgun en bara á annan máta,ég stalst á vigtina,SKAMMASTU ÞÍN HELGA,:$:$:$

já ég veit en hann viktor vinur minn hvíslaði að mér svo skemmtilegri tölu að ég get ekki annað en verið ánægð,:haha::haha:en hins vegar verðið þið að bíða frammá þriðjudag eftir nýjustu tölum hehe ein voða fyndin.

 

Ég veit vel að maður á ekki að vera gera þetta en vegna þess að mér fannst ég svindla svo geðveikt mikið þá bara varð ég að kíkja en ég get svarið það að ég kíkti bara með öðru auganu alveg satt;););)

 

Annars höfum við fengið gest sem neitar að láta sig hverfa haldið þið að LASARUS sé mættur á svæðið og báðir guttarnir orðnir veikir þessar elskur ég ætla bara rétt að vona að þessi BÖLV/&/&= :evil::evil:LASARUS  verði búin að koma sér í burtu áður en elskurnar mínar 2, dóttir og dóttirdóttir koma eftir 8 daga:P:P:P

 en það væri sko alveg eftir því að þá væri yngsta prinsessan á bænum orðin veik. En við vonum það besta ekki satt 8)8)

 

Hey mágur minn einn sem er að slá öll met fyrr og síðar í nýja lífsstílnum (nei ég seigji svona) sagði villa það að fyrir hvert kg sem hann missir skellir hann vatni á flöskur og geymir þær á vísum stað þar sem hann getur alltaf virt fyrir sér kg fjöldan sem hann er búin að missa,reyndar er hann algjör snilld þessi drengur búinn að missa 16kg á 8 vikum ÓTRÚLEGT.:haha::haha::haha::haha:

 

PISTLI LOKIÐ Í DAG :P:P

MEGIÐ ÞIÐ ÖLL SEM EITT EIGA YNDISLEGAN DAG

ÞAÐ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA :haha::haha:

BARÁTTAKVEÐJUR

HELGA OG VILLI 8)8)8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
gamla bloggið mitt
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan